top of page
14352103_551750271699988_440985033430768487_o.jpg

Möntrur, trommuhringir & svett í Birkihofi.
29-31 maí 2026

✨ Möntrur, trommuhringir & svett í Birkihofi ✨

 

 

✨ Velkomin í nærandi helgi í Birkihofi ✨

 

Í samstarfi við Jónas Sigurðsson og Sveinbjörn Hafsteinsson bjóðum við upp á einstaka og nærandi helgi í Birkihofi þar sem saman fara gleði, söngur, trommuhringir, svitaathöfn og djúp nærvera.

 

Þessi helgi er dýrmætt tækifæri til að opna hjartað, leyfa nýjum tengslum að fæðast og njóta þess að vera í góðum hópi í einlægu og öruggu rými.

 

Jónas og Svenni leiða Kirtan-möntrusöng, trommuhringi og tónlistarheilun. Við hjónin í Birkihofi, Laufey og Valur, leiðum svitaathöfnina og höldum utan um hópinn af hlýju, nærveru og öryggi.

 

Ef þú finnur köllun til að taka þátt í þessari upplifun, hvetjum við þig til að bóka sem fyrst.

 

 

🌿 Takmarkað pláss – aðeins 14 þátttakendur

 

  • Tveir saman í Queen size herbergi – 88.000 kr á mann

  • Tveir saman í Twin herbergi – 88.000 kr á mann

  • Þriggja manna herbergi – 80.000 kr á mann

 

✨ Persónulegt og djúpt rými þar sem hver og einn fær að njóta sín

 

📩 Skráning: birkihof@birkihof.is

 

👉 Hljóðfæri: Þátttakendur mega koma með eigin trommur og hristur. Einnig verða hljóðfæri á staðnum.

 

 

✨ Um leiðbeinendur ✨

 

 

Jónas Sigurðsson

 

Jónas hefur átt farsælan tónlistarferil og unnið mikið með sjálfsvinnu sem hann miðlar í gegnum tónlist og tónleikahald. Hann er ástríðufullur talsmaður mildi hjartans og heilbrigðrar karlmennsku á öld vatnsberans.

 

 

Laufey Guðmundsdóttir

 

Laufey er með BA-gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og framhaldsnám í markþjálfun. Hún hefur djúpan áhuga á heilsu og mannlegri hegðun og styður fólk í að finna sinn eigin takt í lífinu. Hún er eigandi Birkihofs og hefur haldið svitaathafnir þar í yfir 10 ár.

 

 

Valur Ásgeirsson

 

Valur starfaði sem pípari í um 30 ár áður en hann fylgdi köllun sinni og lærði markþjálfun hjá Virkja. Hann hefur tekið þátt í svitaathöfnum í yfir 25 ár og síðustu 10 árin haldið þær í Birkihofi með Laufeyju. Hann brennur fyrir vexti og umbreytingu fólks.

 

 

Sveinbjörn Hafsteinsson

 

Sveinbjörn er fjölhæfur tónlistarmaður og jógakennari sem skapar djúp og heilandi rými með tónlist sinni. Nærvera hans einkennist af ró, hlustun og tengingu sem snertir hjarta og sál.

 

 

📅 Dagskrá 29.–31. maí 2026

 

 

🌿 Föstudagur – Lending & tenging

 

17:00 – 18:00

🤝 Mæting & móttaka

 

19:00 – 20:00

🍴 Léttur kvöldmatur

 

20:00

🪘 Trommuhringur & Kirtan (90 mín)

☯️ Kvöldflæði – söngur og samvera

 

 

🔥 Laugardagur – Dýpkun & svitaathöfn

 

08:30 – 09:00

☀️ Morgunsöngur og íhugun

 

09:00 – 10:00

🍴 Morgunmatur

 

10:00 – 16:00

✨ Opið flæði

 

  • Kirtan / möntrur

  • Trommuhringur

  • Tónheilun & djúpslökun

 

👉 Þátttakendur geta gengið inn og út eftir þörfum

👉 Boðið upp á millimál yfir daginn

 

17:00 – 21:00

🔥 Svitaathöfn

 

  • Ceremonial cacao & tenging hóps

  • Svitahof

  • Léttur kvöldverður eftir á

 

21:30

☯️ Kvöldflæði – söngur og samvera

 

 

🌸 Sunnudagur – Samþætting & heimferð

 

08:30 – 09:00

☀️ Íhugun og morgunsöngur

 

09:00 – 10:00

🍴 Morgunmatur

 

10:00 – 11:00

✨ Kveðju-kirtan

 

11:15 – 12:30

💫 Samþætting (Integration)

 

12:30 – 13:30

🙏 Bröns & kveðjustund

 

14:00

🚗 Heimferð

Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar eða skráðu þig hér.

Takk fyrir að hafa samband..

  • Black Facebook Icon
bottom of page