
Aðventugaldur í Birkihofi
5.–6. desember
🕉️ Möntrur
🪘 Trommuhringir
🎶 Tónheilun
🔥 Svett
☕ Kakó
🎵 Söngur
🤍 Samvera
🏡 Gisting er í boði fyrir þá sem vilja dvelja yfir nóttina.
✨ Í samstarfi við Jónas Sigurðsson og Sveinbjörn Hafsteinsson bjóðum við upp á nærandi og hjartnæma stund ì aðventunni í Birkihofi. Þar sem gleði, söngur, trommuhringir, svitaathöfn og djúp nærvera fléttast saman í eitt fallegt flæði.
Þetta er dýrmætt tækifæri til að opna hjartað, næra tengslin við sjálfið og aðra og njóta þess að vera í góðum hópi í einlægni og öryggi.
Jónas og Sveinbjörn leiða okkur inn í nærandi samveru með Kirtan-möntrusöng, trommuhringjum og tónheilun. Síðar um daginn tökum við hjónin í Birkihofi við ,Laufey og Valur, og leiðum ykkur inn í svitaathöfn
Ef þú finnur köllun til að taka þátt í þessari upplifun hvetjum við þig til að bóka tímanlega.
🌿 Takmarkað pláss – aðeins 16 þátttakendur
✨ Um leiðbeinendur
Jónas Sigurðsson
Jònas hefur átt farsælan tónlistarferil og unnið mikið með sjálfsvinnu sem hann miðlar í gegnum tónlist og tónleikahald. Hann er ástríðufullur talsmaður mildi hjartans og heilbrigðrar karlmennsku á öld vatnsberans.
Laufey Guðmundsdóttir
Laufey er galdrakona í hjarta sem brennur fyrir svitaathöfnum, mannlegum tengslum og því að skapa fallegt og nærandi rými fyrir fólk. Hún hefur ástríðu fyrir dýptinni í einlægu samtali og mætir fólki af hlýju og nærveru.
Laufey er eigandi Birkihofs Retreat ásamt Val og elskar að skapa rými þar sem fólk getur komið saman, tengst og notið þess einfaldlega að vera.
Valur Ásgeirsson
Valur starfaði sem pípari í um 30 ár áður en hann fylgdi köllun sinni og lærði markþjálfun hjá Virkja. Hann hefur tekið þátt í svitaathöfnum í yfir 25 ár og síðustu 10 árin haldið þær í Birkihofi með Laufeyju. Hann brennur fyrir vexti og umbreytingu fólks.
Sveinbjörn Hafsteinsson
Sveinbjörn er fjölhæfur tónlistarmaður og jógakennari sem skapar djúp og heilandi rými með tónlist sinni. Nærvera hans einkennist af ró, hlustun og tengingu sem snertir hjarta og sál.
✨ Dagskrá – 5. desember ✨
📍 Mæting kl. 11:00 í Birkihof
Opið flæði yfir daginn
✨ Kirtan & möntrusöngur
🥁 Trommuhringur
🌊 Tónheilun & djúpslökun
Þátttakendur geta gengið inn og út úr flæðinu eftir þörfum og notið dagsins á sínum eigin hraða.
☕ Léttar veitingar og millimál verða í boði yfir daginn.
🔥 17:00–21:00 | Svitaathöfn
🤎 Ceremonial cacao & tenging hópsins
🔥 Svitaathöfn í svitahofi
🥣 Léttur kvöldverður eftir athöfnina
☯️ 21:30 | Kvöldflæði
Söngur, samvera og mjúk lending saman í nærandi rými.
🏡 Gisting er í boði fyrir þá sem vilja dvelja yfir nóttina.
✨ 6. desember | Morgunn í Birkihofi ✨
☕ Morgunmatur og notaleg samvera áður en haldið er heim á leið.
💫 Verð fyrir dagsretrítið: 35.000 kr.
💫 Verð með gistingu og morgunmat: 45.000 kr.
📩 Skráning og frekari upplýsingar: birkihof@birkihof.is
✨️ Við hlökkum til að eiga með ykkur dýrmæta stund þar sem við stígum út úr amstri hversdagsins, hægjum á, syngjum, gleðjumst og njótum þess að vera sama✨️
