
Möntrur, trommuhringir & svett í Birkihofi.
Laugardagur 30 maí 2026
✨ Möntrur, trommuhringir & svett í Birkihofi ✨
🏡 Gisting er í boði fyrir þá sem vilja dvelja yfir nóttina.
✨ Velkomin í nærandi dag í Birkihofi ✨
Í samstarfi við Jónas Sigurðsson og Sveinbjörn Hafsteinsson bjóðum við upp á nærandi og hjartnæman dag í Birkihofi, þar sem gleði, söngur, trommuhringir, svita-athöfn og djúp nærvera fléttast saman í eitt fallegt flæði.
Þessi dagur er dýrmætt tækifæri til að opna hjartað, næra tengslin við sjálfið og aðra, og njóta þess að vera í góðum hópi í einlægni og öryggi.
Jónas og Sveinbjörn leiða Kirtan-möntrusöng, trommuhringi og tónlistarheilun, á meðan við hjónin í Birkihofi, Laufey og Valur, leiðum svita athöfnina og höldum utan um hópinn af hlýju, nærveru og öryggi.
Ef þú finnur köllun til að taka þátt í þessari upplifun hvetjum við þig til að bóka tímanlega.
🌿 Takmarkað pláss – aðeins 16 þátttakendur
✨ Um leiðbeinendur ✨
Jónas Sigurðsson
Jónas hefur átt farsælan tónlistarferil og unnið mikið með sjálfsvinnu sem hann miðlar í gegnum tónlist og tónleikahald. Hann er ástríðufullur talsmaður mildi hjartans og heilbrigðrar karlmennsku á öld vatnsberans.
Laufey Guðmundsdóttir
Laufey er með BA-gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og framhaldsnám í markþjálfun. Hún hefur djúpan áhuga á heilsu og mannlegri hegðun og styður fólk í að finna sinn eigin takt í lífinu. Hún er eigandi Birkihofs og hefur haldið svitaathafnir þar í yfir 10 ár.
Valur Ásgeirsson
Valur starfaði sem pípari í um 30 ár áður en hann fylgdi köllun sinni og lærði markþjálfun hjá Virkja. Hann hefur tekið þátt í svitaathöfnum í yfir 25 ár og síðustu 10 árin haldið þær í Birkihofi með Laufeyju. Hann brennur fyrir vexti og umbreytingu fólks.
Sveinbjörn Hafsteinsson
Sveinbjörn er fjölhæfur tónlistarmaður og jógakennari sem skapar djúp og heilandi rými með tónlist sinni. Nærvera hans einkennist af ró, hlustun og tengingu sem snertir hjarta og sál.
✨ Dagskrá 30 maí ✨
📍 Mæting kl. 11:00 í Birkihof
Opið flæði yfir daginn
✨ Kirtan & möntrusöngur
🥁 Trommuhringur
🌊 Tónheilun & djúpslökun
Þátttakendur geta gengið inn og út úr flæðinu eftir þörfum og notið dagsins á sínum eigin hraða.
☕ Léttar veitingar og millimál verða í boði yfir daginn.
🔥 17:00 – 21:00 | Svita Athöfn (Sweat Lodge)
🤎 Ceremonial cacao & tenging hópsins
🔥 Svita Athöfn í svitahofi
🥣 Léttur kvöldverður eftir athöfnina
☯️ 21:30 | Kvöldflæði
Söngur, samvera og mjúk lending saman í nærandi rými.
🏡 Gisting er í boði fyrir þá sem vilja dvelja yfir nóttina.
Vinsamlegast bókið gistingu með að minnsta kosti tveggja daga fyrirvara.
💫 Verð fyrir dagsretrítið: 35.000 kr.
💫 Verð með gistingu og morgunmat: 45.000 kr.
Við hlökkum innilega til að taka á móti ykkur í nærandi umhverfi Birkihofs. 🌿
